Kickstart

Líkamsrækt undir leiðsögn einkaþjálfara er örugg leið að árangri.
Ef þú ert vanur/vön líkamsrækt en tókst þér smá pásu og þarft smá hvatningu til að hefja aftur þjálfun, þá er þetta tilvalið fyrir þig.
Innifalið í kickstart pakkanum: 

 ·        3 einkatímar með einkaþjálfara í sal

 ·        Sérsniðið æfingaprógramm miðað við þín markmið og stöðu

 ·        Matardagbók til að skapa yfirsýn

 ·        Einfaldar næringaráðleggingar sem styðja við þjálfunina

Markvissar æfingar sem skila árangri

Við vinnum með réttar æfingar, rétt álag og rétt tempó þannig að þú styrkist, finnir öryggi í æfingum og byggir upp grunn sem þú getur haldið áfram með.

Ég set saman prógram sem byggist á þinni líkamsgerð, getu, fyrri reynslu og lífsstíl. Þetta tryggir að þú æfir markvisst í áttina að þínum markmiðum.

Ég leiði þig í gegnum æfingarnar þannig að þú framkvæmir þær rétt, færð meira út úr hverri lyftu sem minnkar líkurnar á meiðslum og byggir grunn sem nýtist þér til framtíðar.

Þú færð stuðning og leiðsögn sem hjálpar þér að halda aga og tryggir að þú haldir áfram, líka þegar mótstaðan mætir.

Með markvissri þjálfun finnur þú fljótt mun á líkamanum – meiri styrk, betri líkamsstöðu, aukna orku og betri líðan í daglegu lífi.