Hópþjálfun
Hópþjálfun - 2 saman
Líkamsrækt undir leiðsögn einkaþjálfara er örugg leið að árangri.
Þið fáið sérsniðna æfingaáætlun aðhald og stuðning í sameiginlegu ferli sem hjálpar ykkur að ná ykkar besta árangri – hvort sem markmiðið er að styrkjast, mótast, léttast eða komast í betra form.
Innifalið í hópþjálfun:
Einstaklingsmiðað æfingaprógram – fagleg leiðsögn í réttri tækni – hvatning og stuðningur alla leið – Mælingar í byrjun og lok þjálfunar ásamt matardagbók til að skapa yfirsýn og einfaldar næringaráðleggingar sé þess óskað.
Sérsniðið æfingaprógram fyrir ykkar markmið
Ég set saman prógram sem byggist á ykkar líkamsgerð, getu og lífsstíl.
Þetta tryggir að hvert skref leiðir ykkur nær þeim árangri sem þið sækist eftir.
Við vinnum með réttar æfingar, rétt álag og rétt tempó þannig að þið styrkist, mótist og náið markmiðum ykkar á skýran og öruggan hátt.
Ég leiði ykkur í gegnum æfingarnar þannig að þið framkvæmið þær rétt, fáið meira út úr hverri lyftu og minnkið líkurnar á meiðslum á sama tíma og þið náið hámarks árangri.
Þið fáið leiðsögn og hvatningu sem heldur ykkur á réttri braut, hjálpar ykkur að halda aga og tryggir að þið haldið út, líka þegar mótstaðan mætir.
Með reglulegri þjálfun finnið þið mun á líkamanum – meiri styrk, betri líkamsstöðu, aukna orku og betri líðan í öllu sem þið gerið.