Þjónustan skiptist í þrjá megin flokka:
Einkaþjálfun
Fyrir alla sem vilja komast í sitt besta form, auka styrk, byggja upp vöðva, léttast eða ná stöðugum árangri í líkamsrækt.
Ég legg áherslu á öryggi, rétt form æfinga, jákvæða upplifun og raunhæfa þjálfun sem passar inn í þitt daglega líf.
Hentar vel ef þú vilt t.d:
- Hafa einhvern sem styður þig og heldur þér á réttri braut
- Styrkjast, léttast eða auka þol og vöðvamassa
- Koma þér af stað í líkamsrækt á öruggan og skilvirkan hátt
- Fá sérsniðna æfingaáætlun út frá þínum markmiðum og getu
Einkaþjálfun hjá mér fer fram í World Class á Selfossi og því þarf að hafa virkan aðgang að stöðinni.
Markþjálfun
Fyrir þá sem vilja vinna með hugarfar, aga, markmið og innri stefnu.
Markþjálfunin mín er einföld, skýr og byggð á núvitund og raunverulegri lífsreynslu.
Hentar vel ef þú vilt:
- Setja þér skýr og raunhæf markmið
- Byggja upp sjálfstraust
- Finna fókus og innri festu
- Bæta samskipti og tengsl við sjálfa/n þig og aðra
Markþjálfun fer fram á stofu hjá mér að Austurvegi 6, Selfossi.
Samþætt Þjálfun – Hugur og líkami
Þessi þjálfun sameinar markþjálfun og einkaþjálfun í skýrt 6 vikna ferli sem byggir upp styrk, aga og sterkari sjálfsmynd.
Þessi nálgun er fyrir einstaklinga sem vilja styrkja sig að innan sem utan á sama tíma.
Hentar vel ef þú:
- Ert að koma úr veikindum eða meiðslum
- Vilt byrja í líkamsrækt á öruggum og raunhæfum grunni
- Finnur að hugarfarið eða skortur á aga hefur haldið þér aftur
- Þarft leiðsögn og hvatningu til að finna sjálfstraust og trú á eigin getu
- Leitar að faglegri þjálfun þar sem þú færð persónulega leiðsögn og stuðning
Samþætt þjálfun fer fram á stofu hjá mér að Austurvegi 6, Selfossi og í World Class á Selfossi.