Samþætt þjálfun
Þessi 4 vikna þjálfun sameinar einkaþjálfun og markþjálfun í eitt samþætt ferli þar sem unnið er samhliða með líkama, hugarfar og daglegt líf.
Þú færð einstaklingsmiðaða leiðsögn, sérsniðið æfingaprógram og vikulegt markþjálfunarsamtal sem styður við framvindu þína.
Þessi nálgun hentar meðal annars þeim sem vilja:
– byggja sig upp á öruggan og raunhæfan hátt
– koma sér af stað eftir veikindi eða meiðsli
– styrkja sjálfsmynd og takast á við hindranir
– skapa meiri stöðugleika og fókus í daglegu lífi
Í markþjálfun vinnum við með það sem raunverulega hefur áhrif á þig hverju sinni.
Í einkaþjálfun byggjum við upp styrk, tækni og traust á eigin líkama.
Við skoðum einnig daglegt jafnvægi og einfaldar venjur sem styðja við orku og endurheimt.
Markmiðið er ekki skyndilausn, heldur raunveruleg uppbygging sem þú getur haldið áfram með eftir að ferlinu lýkur.
Samþætt þjálfun
Einstaklingar – 4 vikna ferli
95.000 kr
- Vika 1 - Markþjálfun + einkaþjálfun
- 1 viðtal á stofu (50 mín) / þjálfun hefst
- Vika 2 - Markþjálfun + einkaþjálfun
- 1 viðtal á stofu (50 mín) + þjálfun
- Vika 3 - Markþjálfun + einkaþjálfun
- 1 viðtal á stofu (50.mín) + þjálfun
- Vika 4 - Markþjálfun (50.mín) + Þjálfun
- 1 viðtal á stofu (50 mín) + þjálfun líkur