Skilmálar – Vöxtur Þjálfun
- Almenn ákvæði
Með því að nýta þjónustu Vöxtur Þjálfun samþykkir viðskiptavinur þessa skilmála.
Skilmálarnir gilda um alla þjónustu sem boðin er í gegnum vefsíðuna voxturthjalfun.is í staðbundinni þjálfun, fjarþjálfun og viðtölum.
- Eðli þjónustunnar
Vöxtur býður upp á:
• Einkaþjálfun
• Markþjálfun
• Samþætta þjálfun (Hugur | Líkami)
• Fjarþjálfun og sérsniðin æfingaprógrömm
Þjónustan er ætluð til fræðslu, leiðsagnar og stuðnings. Hún kemur ekki í stað læknisfræðilegrar greiningar, meðferðar eða ráðgjafar.
- Ábyrgð viðskiptavinar
Viðskiptavinur ber sjálfur ábyrgð á:
• Að upplýsa um heilsufar, meiðsli, sjúkdóma eða aðstæður sem geta haft áhrif á þjálfun eða þátttöku.
• Að hlusta á líkama sinn og virða eigin mörk.
• Að framkvæma æfingar og leiðbeiningar á eigin ábyrgð.
Vöxtur ber ekki ábyrgð á meiðslum eða heilsutjóni sem rekja má til rangrar notkunar á leiðbeiningum eða vanrækslu á upplýsingagjöf.
- Markþjálfun og persónuleg vinna
Markþjálfun er samtalsferli sem miðar að sjálfsþekkingu, skýrleika og ábyrgð.
Viðskiptavinur ber fulla ábyrgð á ákvörðunum sínum, aðgerðum og breytingum sem hann velur að gera í kjölfar markþjálfunar.
- Bókanir, afbókanir og forföll
- Afbóka þarf tíma í markþjálfun og einkaþjálfun með minnst 24 klst. fyrirvara.
• Sé tími ekki afbókaður innan þess tíma telst hann fullnýttur.
• Vöxtur áskilur sér rétt til að færa tíma vegna óviðráðanlegra aðstæðna.
5.1 Veikindi
Veikindi viðskiptavinar:
• Ef viðskiptavinur veikist skal afbóka tíma eins fljótt og auðið er.
• Veikindi sem tilkynnt eru með minnst 24 klst. fyrirvara leiða til þess að tími færist án kostnaðar.
- Veikindi sem tilkynnt eru með skemmri fyrirvara geta, einu sinni, leitt til tilfærslu tíma samkvæmt mati einkaþjálfara.
• Endurtekin forföll með stuttum fyrirvara geta leitt til þess að tími teljist fullnýttur.
• Mæting í tíma með einkenni smitsjúkdóma (hiti, flensa, magapest o.þ.h.) er ekki heimil.
Veikindi einkaþjálfara:
• Ef einkaþjálfari fellir niður tíma vegna veikinda færist tími eða er bætt við síðar samkvæmt samkomulagi.
• Enginn tími tapast vegna veikinda einkaþjálfara.
Fjarþjálfun:
• Veikindi stöðva ekki fjarþjálfun sjálfkrafa.
• Æfingaálag og prógramm er aðlagað að líðan og orku hverju sinni.
• Engar endurgreiðslur eru veittar vegna veikinda, en aðlögun er hluti af þjónustunni.
- Greiðslur og endurgreiðslur
- Greiðsla fer fram samkvæmt verðskrá hverju sinni.
• Greidd þjónusta er almennt ekki endurgreidd, nema annað sé sérstaklega tekið fram.
• Í fjarþjálfun, Kickstart og stökum prógrömmum telst þjónusta hafin við greiðslu og afhendingu efnis.
- Trúnaður og persónuvernd
Allar persónuupplýsingar eru meðhöndlaðar í trúnaði og í samræmi við gildandi persónuverndarlög.
Upplýsingar eru eingöngu notaðar í tengslum við þjónustu Vöxtur og aldrei afhentar þriðja aðila nema með samþykki eða samkvæmt lögum.
(Sjá nánar í Persónuverndarstefnu vefsíðunnar.)
- Höfundarréttur
Allt efni á vefsíðunni, þ.m.t. textar, æfingaprógrömm, skjöl og annað efni, er eign Vöxtur Þjálfun og má ekki afrita, dreifa eða nota í öðrum tilgangi án skriflegs leyfis.
- Breytingar á skilmálum
Vöxtur áskilur sér rétt til að breyta skilmálum án fyrirvara.
Uppfærðir skilmálar taka gildi við birtingu á vefsíðunni.
- Lög
Skilmálar þessir lúta íslenskum lögum.
Ágreiningsmál skulu rekin fyrir íslenskum dómstólum.