Um Vöxt
Um Vöxt
Ég heiti Sigurbjörn Jónasson en er alltaf kallaður Bjössi.
Ég er menntaður einkaþjálfari og markþjálfi með áralanga reynslu af styrktarþjálfun, líkamsrækt og sjálfsrækt.
Ég starfa sem einkaþjálfari í World Class á Selfossi ásamt því að vera með fjarþjálfun í gegnum Vöxtur Þjálfun appið.
Ég starfa einnig sem íþrótta- og heilsumarkþjálfi á eigin stofu með áherslu á íþróttir, heilsu og frammistöðu.
Í markþjálfun vinnum við með hugarfar, sjálfstraust, fókus og daglegar venjur sem styðja við betri frammistöðu og aukna vellíðan.
Markþjálfun er samtalsferli þar sem þú færð öruggt rými og tækifæri til að vaxa á þínum forsendum.
Í Vöxtur þjálfun legg ég mikla áherslu á skýrleika, einfaldleika og árangur sem endist. Hver einstaklingur kemur inn með sín markmið og sína sögu og við vinnum svo þjálfunina út frá því.
Hvort sem þú ert að stíga þín fyrstu skref í ræktinni, koma þér aftur af stað eftir meiðsli eða veikindi eða vilt sjá skýrar hvert þú stefnir í lífinu þá býð ég upp á þjálfun, stuðning og persónulega leiðsögn sem hjálpar þér að ná því sem þú stefnir að.
Markmiðið mitt er að styðja þig þannig að þú standir sterkar líkamlega og andlega í þínu lífi.
hvort sem markmiðið er:
- Hefðbundin líkamsrækt, þolþjálfun og lyftingar
- Vinna með hugarfar, markmiðasetningu og sjálfsmynd
- eða dýpri endurreisn eftir erfið veikindi eða meiðsli
Þá er ég hér fyrir þig.
Þín þjálfun – þinn vöxtur